Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. maí 2019 14:30
Elvar Geir Magnússon
Neres efstur á óskalista Atletico Madrid
David Neres fagnar.
David Neres fagnar.
Mynd: Getty Images
David Neres, 22 ára sóknarleikmaður Ajax, er efstur á óskalista Atletio Madrid.

Aja hefur átt magnað tímabil og stjarna Neres hefur skinið skært.

Liverpool og Chelsea eru meðal félaga sem hafa verið orðuð við Neres. Ljóst er að hann fer ekki fyrir neina smáaura.

Diego Simeone, stjóri Atletico, er að leita að liðsstyrk en Lucas Hernandez, Diego Godin og Antoine Griezmann eru allir á förum.

Neres var valinn í brasilíska landsliðshópinn fyrir Copa Amercia en hann skoraði 12 mörk og átti 15 stoðsendingar í 50 leikjum fyrir Ajax á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner