Víkingar urðu að sætta sig við tap gegn Val í leik liðanna á Origo vellinum fyrr í dag. Sigur heimamanna var aldrei í hættu og urðu úrslit leiksins 4-1 Val í vil á
Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 Víkingur R.
„Við áttum bara ekki breik í dag frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ voru fyrstu viðbrögð Halldórs Smára Sigurðssonar varnarmanns Víkings eftir leik.
Víkingar neyddust til að gera tvær breytingar vegna meiðsla á fyrsta korteri leiksins og var það auðséð að það riðlaði skipulagi liðsins enda gengu Valsmenn á lagið og skoruðu tvö góð mörk
„Já það bætir nú ekkert úr skák að missa þessa tvo út af en svo erum við búnir að spila marga leiki á undanförnum dögum og eins og sást í seinni hálfleik voru Valsarar bara sáttir og við bara búnir á því.“
Halldór Smári er mikill áhugamaður um skó eins og lesendur Fótbolta.net hafa fengið að kynnast. Lá fréttaritara forvitni á hvort að fjölgað hefði í skóskáp Halldórs að undanförnu.
„Það er alltaf eitthvað, Maður slær aldrei hendinni á móti góðu pari af skóm ef það kemur upp.“
Nánar er rætt við Halldór í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir