Liverpool fær samkeppni frá Real Madrid - Barcelona á eftir Haaland - Man Utd býður Mainoo í skiptum fyrir Valverde
Gummi Kri um Jökul: Hann gerir töluvert meira gagn þar heldur en upp í stúku
Heimir: Ef það er einhver sem ég vil að fái svona færi þá er það Bjarni, fyrir utan Björn Daníel
Markmiðið sett eftir Bröndby leikinn: „Búnir að standast prófið hingað til“
Þórarinn Ingi: Ég er bara að vinna hérna og hjálpa til eins og ég get
Segir Sigurð besta dómara landsins - „Búinn að fá alveg nóg og lét gamminn geisa“
Gylfi: Tímabært fyrir dómarana að fá VAR hjálp
Hallgrímur Jónasson: Ég fór á háu nóturnar
Óskar Hrafn: Við höfum örlögin í okkar höndum
Láki: Stundum þarf maður að vera pínu bófi
Birnir Snær: Okkur fjölskyldunni líður ótrúlega vel hérna
Alex Freyr: Þurfum að loka svona leikjum 6 til 7-0
Maggi með ákall til stuðningsmanna - „Þurfum að fylla völlinn og búa til alvöru stemningu"
Stefan Ljubicic: Féll allt á einhvern hátt fyrir okkur
Venni: Þetta er bara leikaraskapur og hann kemst upp með það
Ívar Örn: Manni finnst maður oft vera full gamall
Hemmi Hreiðars: Stórkostlegt að vera komnir þetta langt á kornungu liði
Haraldur Freyr: Hjálpar okkur helling að við vorum í þessum leik í fyrra
Gunnar Heiðar: Ég er að verða atvinnulaus núna
Ingvar Freyr: Verður einhver helvítis veisla næstu helgi
Berglind Björg: Ég er bara ótrúlega stolt af þessu
   lau 22. september 2018 17:10
Hulda Mýrdal
Elín Metta: Svekkjandi að ná því ekki
Kvenaboltinn
Elín í leik fyrr í sumar
Elín í leik fyrr í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur sigraði Breiðablik 3-2 í lokaumferð Pepsideildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  2 Breiðablik

Það hlýtur að hafa verið gaman að enda tímabilið hér á sigri?
"Já þetta var bara mjög skemmtilegt í dag. Gaman að spila."

En ef þú lítur yfir sumarið. Þið eruð með alveg bilaðslega mikið af flottum leikmönnum í þessu liði. Þið náið ekki að blanda ykkur í toppbaráttuna. Hvað veldur þessu?
"Við þurfum kannski bara meiri tíma til að slípa okkur saman. Það voru nýir leikmenn að koma inn og já við þurfum kannski bara meiri tíma með nýjum þjálfara og svona. Ég held að það geti alveg komið sko"

Elín var fyrir leikinn í 4.sæti yfir markadrottningar deildarinnar. Fyrir ofan hana var Sandra María Jessen í Þór/KA með 14.mörk.

12 mörk í sumar. Þú fékkst fullt af færum í dag, það hlýtur að hafa verið svekkjandi?
"Já já ég vildi alveg skora sko. Auðvitað svekkjandi að ná því ekki en við unnum samt leikinn og ég er ánægð með það."

En svona fyrir ykkur í sumar. Þið eruð vanar að vera alltaf í toppbaráttunni. Hvernig er svona að gíra sig inn í leikina, síðustu leikina, vitandi það að þið eruð ekki að slást um þann stóra?
" Ég meina maður fer í alla leiki til þess að vinna þá. Maður hlýtur að geta mótiverað sig upp í það, við náðum að gera það í dag. Nutum þess að spila og okkur finnst gaman í fótbolta. Ef manni finnst gaman að spila ætti að vera auðvelt að mótivera sig í leiki"

Nánar er rætt við Elínu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner