Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
   sun 21. september 2025 20:17
Daníel Smári Magnússon
Hallgrímur Jónasson: Ég fór á háu nóturnar
Hallgrímur var vægast sagt ósáttur með fyrri hálfleik sinna manna, en þeim mun ánægðari með svar þeirra í seinni hálfleiknum.
Hallgrímur var vægast sagt ósáttur með fyrri hálfleik sinna manna, en þeim mun ánægðari með svar þeirra í seinni hálfleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já, mér fannst við bara ekki vera með grunngildin í lagi í fyrri hálfleik og ég var ósáttur. Í rauninni má segja að við höfum verið heppnir að vera ennþá inni í leiknum. Mér fannst við passífir og hreinlega bara ekki nenna að sinna vörninni eins og þarf að gera í KA. Við ræddum það í hálfleik og ég get alveg viðurkennt það að ég fór á háu nóturnar. Ég er ekki mikið fyrir það í hálfleiksræðum, er yfirleitt að reyna að koma með lausnir og ræða almennilega, en ég byrsti mig inni í klefa og við breytum um leikkerfi og komum bara flottir út,'' sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir 4-2 sigur á KR í kvöld. Sigurinn kom KA í efsta sæti í neðri hluta Bestu-deildarinnar og gerði það að verkum að ýmislegt þyrfi að ganga á afturfótunum til þess að liðið færi niður í Lengjudeildina.

„Ég er virkilega ánægður með svarið frá leikmönnunum, því að hvernig við vorum í fyrri hálfleik er ekki eitthvað sem að sæmir leikmönnum KA.''


Lestu um leikinn: KA 4 -  2 KR

Nokkrir leikmenn KA kenndu sér meins í leiknum og þurftu að fara útaf. Aðspurður sagðist Hallgrímur ekki alveg vera viss hver staðan væri.

„Stubbur fann eitthvað aðeins. Ég held að það sé í lagi með William kallinn, sem að kláraði leikinn. Ásgeir var eitthvað stífur aftan í læri og Jóan stífur í mjöðm. Bjarni fékk aðeins þarna þegar hann hljóp. Það eru nokkrir lemstraðir, en sem betur fer er vika í næsta leik þannig að við verðum klárir,'' sagði Hallgrímur.

Hallgrímur kvaðst afar ánægður með svör sinna manna og varamanna í seinni hálfleik.

„Já, bara ánægður með svarið í seinni hálfleik. Sýnir mér að ykkur sé ekki sama. Þeir sýndu það svo sannarlega og það fyrsta sem ég heyri frá leikmanni þegar ég kom að fagna eftir leikinn "we showed you we care!" Það var frábært. Já, þeir komu rosalega vel inn. Nefni Andra Fannar sem að hefur ekki fengið mikinn spiltíma í sumar, hann kemur og spilar vel og hlýjar hjartarótum þjálfarans að sjá hann skora líka! Það var mjög gaman, en komum frábærlega inn og sýndum flottan karakter í seinni hálfleik.''

Mikilvægt var fyrir KA menn að gefa tóninn í þessari toppbaráttu neðri hlutans, en var ekki síður mikilvægt að drepa strax einhverjar raddir um að liðið gæti sogast í fallpakkann?

„Jú, það var skref númer eitt. Okkur langar að vinna neðri helminginn og okkur langar að gera vel þar. Úr því sem komið er núna, þá held ég að við séum öruggir, ég á eftir að skoða það. Líka bara sterkt að koma til baka á móti liði eins og KR, þegar þeir eru komnir yfir. Þeir eru særðir og spiluðu virkilega vel í fyrri hálfleik, voru ofan á og labba inn með forystu, þannig að seinni hálfleikurinn hefði getað orðið mjög erfiður. Þannig að svarið sem ég fékk var bara mjög gott. Þó að KR séu neðarlega í deildinni, þá eru þeir virkilega sterkir í sumum þáttum leiksins og mér fannst við díla vel við það í seinni hálfleik,'' sagði Hallgrímur Jónasson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner