Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Real Madrid manni færri en vann öruggan sigur
Mynd: EPA
Real Madrid 3 - 1 Pachuca
1-0 Jude Bellingham ('35 )
2-0 Arda Guler ('43 )
3-0 Federico Valverde ('70 )
3-1 Elias Montiel ('80 )
Rautt spjald: Raul Asencio, Real Madrid ('7)

Real Madrid vann Pachuca frá Mexíkó í annarri umferð riðlakeppni HM félagsliða í kvöld.

Real var manni færri nánast allan leikinn þar sem Raul Asencio fékk að líta rauða spjaldið á sjöundu mínútu fyrir að brjóta á Salomon Rondon sem var að sleppa einn í gegn.

Þrátt fyrir það skoraði Jude Bellingham fyrsta mark leiksins. Arda Guler bætti síðan öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks eftir laglegt samspil.

Federico Valverde innsiglaði síðan sigur Real Madrid en Elias Montiel klóraði í bakkann fyrir Pachuca.

Real er á toppi H-riðils með fjögur stig. Salzburg er í 2. sæti með þrjú stig en liðið er þessa stundina að spila gegn Al-Hilal sem er í 3. sæti með eitt stig en Pachuca er á botninum án stiga.
Athugasemdir
banner