
„Þetta eru draumasigrarnir. Að pota honum inn á lokamínútunni gerist ekki sætara.“ sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir hádramatískan 3-2 sigur á Keflavík í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 Keflavík
„Þetta var rússíbanaleikur. Mörkin komu í takt við góðu taktana hjá liðunum. Mér fannst við byrja miklu betur. En svo koma Keflvíkingar sterkir inn í seinni hálfleikinn. Mér fannst þeir spila mjög vel í dag og við áttum erfitt með að klukka þá á löngum köflum. Svo náum við að skora einu marki meira en þeir.“
Venni er mjög ánægður með liðið í dag.
„Ég er mjög ánægður með framlagið og frammistöðuna almennt. Fullt af fínum spilköflum en svo þurftum við að þjást. Manni leið ekkert vel því þeir voru stór hættulegir. En þetta var nógu vel gert til að ná í þessi þrjú stig sem okkur langaði í.“
Stilltu Þróttarar leiknum upp sem úrslitaleik?
„Já þannig lagað. Ég stillti þessu upp eins og við værum komnir í bikarinn núna. 16-liða úrslitin í dag og við erum þá komnir í 8-liða úrslitin í næstu umferð. En ég veit ekki hvaða vísindamaður ætlar að reikna það út hvernig þetta þróast í þessari deild því að þessir leikir fara bara á alla vegu. En það eina sem dugar okkur er að vinna leiki og kannski dugar það.“
Sigurvin segir að Þróttaraliðið sé núna bara að reyna að skila góðum frammistöðum og njóta þess að spila fótbolta.
„Það eru þrír leikir eftir og það skiptir engu máli hvar liðin eru í töflunni, mér finnst allir þessir leikir vera erfiðir og jafnir. En ef við náum að skila góðum frammistöðum þá stefnum við á að fara ofar í töflunni. Ef við endum í úrslitakeppninni er það þá frábært. En annars erum við að reyna að skila góðum frammistöðum og njóta þess. Það eru að minnsta kosti þrír leikir eftir. Svo kemur bara vetur.“
Viðtalið við Sigurvin má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.