Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   lau 26. febrúar 2022 12:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brentford með forkaupsrétt á Patrik - „Voru það ánægðir með mig"

Patrik Sigurður Gunnarsson markvörður Viking í Noregi var í ítarlegu viðtali hér á Fótbolta.net á dögunum.


Patrik er 21 árs gamall en hann gekk til liðs við Viking frá Brentford í janúar. Hann hafði áður verið hjá Viking á láni á síðasta ári.

Hann hafði verið mikið á láni frá Brentford en hann gekk til liðs við enska félagið árið 2018. Hann taldi það vera kominn tími á tilbreytingu.

„Þetta gerist þannig að ég hef verið í burtu frá Brentford á láni síðasta eina og hálfa árið til fjögurra félaga; Southend, Viborg, Silkeborg og síðasta Viking. Það hefur gengið mjög vel og mér fannst vera kominn tímapunktur að fara frá Brentford og halda áfram að spila."

Brentford hefur greinilega miklar mætur á íslenska markverðinum þar sem það hefur forkaupsrétt á leikmanninum.

„Þegar ég settist niður með Brentford þá vildu þeir sjá mig halda áfram að spila. Þeir voru það ánægðir með mig að þeir settu það í mínar hendur hvort ég vildi fara aftur á lán. Þeir sögðu við mig að það væri ekkert endilega best fyrir leikmenn að vera alltaf að fara út á lán ár eftir ár. Það væri betra að skipta um félag. Brentford er með fyrsta kauprétt á mér og einnig með ákvæði um að geta keypt mig til baka, þeim fannst mikilvægt að hafa þann möguleika. Þeir sögðustu ætla að fylgjast vel með mér og taka svo stöðuna seinna meir."

Sjá einnig:
Sagði mér hversu mikið félagið vildi fá mig
Patrik: Staðan í landsliðinu bæði mjög opin og skýr
Skilur Brentford vel: Klopp sagði að Raya ætti að vera númer tíu


Slapp
Athugasemdir
banner
banner