Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 30. júní 2018 07:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Lukaku, Kompany og Vermaelen allir klárir hjá Belgíu
Lukaku hefur verið heitur á HM
Lukaku hefur verið heitur á HM
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, Vincent Kompany og Thomas Vermaelen eru allir klárir og verða því með Belgíu þegar liðið mætir Japan í 16-liða úrslitum.

Lukaku hefur skorað fjögur mörk á mótinu hingað til, tvö gegn Panama og tvö gegn Túnis en var ekki með gegn Englandi vegna ökklameiðsla.

Vermaelen spilaði sinn fyrsta leik í Rússlandi en þurfti að yfirgefa völlinn eftir höfuðhögg við Jamie Vardy í seinni hálfleik.

Inn á völlinn í stað Vermaelen kom Kompany en hann hafði meiðst í vináttuleik gegn Portúgal í aðdraganda mótsins

Þeir verða nú allir klárir fyrir leikinn gegn Japan.
Athugasemdir
banner