Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Yfirgefur Roma eftir meira en fimmtíu ára samleið
Goðsagnirnar þrjár: Bruno Conti, Daniele De Rossi og Francesco Totti.
Goðsagnirnar þrjár: Bruno Conti, Daniele De Rossi og Francesco Totti.
Mynd: EPA
Bruno Conti eða „Borgarstjórinn í Róm“ eins og hann er oft kallaður mun yfirgefa Roma þegar samningur hans rennur út í sumar eftir meira en 50 ára samstarf.

Gazzetta dello Sport greinir frá því að það það sé kominn tími á breytingar og mun því ekki framlengja samning Conti.

Conti hóf ævintýrið með Roma árið 1973 sem leikmaður og spilaði þar til 1991. Þar vann hann deildina einu sinni og bikarinn fimm sinnum, en hann er talinn einn af bestu leikmönnum í sögu félagsins.

Brasilíska goðsögnin Pélé sagði Conti besta leikmann HM 1982 er Ítalía varð heimsmeistari og fékk hann þar viðurnefnið „Marazico“, en þar var átt við að hann væri blanda af þeim Diego Maradona og Zico.

Eftir ferilinn hélt hann áfram hjá Roma og á þátt í að uppgötva marga frábæra leikmenn á borð við Daniele De Rossi, Alessio Romagnoli, Alberto Aquilani, Matteo Politano, Riccardo Calafiori og fleiri. Ekki má gleyma mikilvægi hans í að þróa Francesco Totti, stærstu goðsögn í sögu Roma.

Hann hefur sinn hinum ýmsu störfum hjá Roma. Auðvitað fyrst sem leikmaður, síðar sem þjálfari og stjóri, og þá einnig sem yfirmaður akademíunnar.

Samkvæmt Gazzetta dello Sport ætlar Conti að setjast í helgan stein og njóta þess að vera með fjölskyldunni, en hann myndi íhuga það að snúa aftur í boltann ef kallið kemur frá ítalska landsliðinu.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner