Chelsea 1 - 0 Arsenal (2-3, samanlagt)
1-0 Sjoeke Nusken ('90 )
1-0 Sjoeke Nusken ('90 )
Evrópumeistarar Arsenal eru komnir áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar þrátt fyrir 1-0 tap gegn Chelsea í Lundúnum í kvöld.
Arsenal mátti hafa sig allt við að verjast gegn Chelsea-liðinu sem átti hættulegustu færi fyrri hálfleiksins. Daphne van Domselaar, markvörður Arsenal, átti eina stórkostlega vörslu í þeim fyrri en það var nóg að gera hjá henni undir lok seinni.
Van Domselaar átti vörslu út í teiginn á Veerle Buurman sem setti boltann í stöng af stuttu færi og þá varði hún skalla stuttu síðar í tréverkið.
Beth Mead átti skot í stöng hinum megin og þá var mark tekið af Stinu Blackstenius vegna rangstöðu í aðdragandanum.
Sjoeke Nusken kom Chelsea í 1-0 í uppbótartíma en það mark kom allt of seint.
Mikil læti voru á hliðarlínunni undir lok leiks og sá Sonia Bompastor, þjálfari Chelsea, tvö gul og þar með rautt.
Arsenal tók sætið í undanúrslitin og mætir þar Lyon eða Wolfsburg, sem eru tvö af bestu liðum í sögu keppninnar. Þetta er þá í níunda sinn sem Arsenal kemst í undanúrslit, en liðið hefur tvívegis verið Evrópumeistari.



