Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   fim 02. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna í dag - Átta liða úrslitunum lýkur með tveimur risaslögum
Kvenaboltinn
Barcelona tekur á móti Real Madrid
Barcelona tekur á móti Real Madrid
Mynd: EPA
Átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki klárast í kvöld með tveimur stórleikjum.

Spænska stórliðið Barcelona tekur á móti erkifjendum sínum í Real Madrid í El Clásico klukkan 16:45.

Börsungar unnu sannfærandi 6-2 sigur í fyrri leiknum sem fór fram á heimavelli Madrídinga og eru þær því komnar með annan fótinn í undanúrslit.

Í síðasta leiknum i 8-liða úrslitum mætast stórveldin Lyon og Wolfsburg, sem eru tvö bestu lið í sögu Meistaradeildarinnar, en Lyon er sigursælasta lið keppninnar með átta titla og alls komist ellefu sinnum í úrslitaleikinn en Wolfsburg er með tvo titla og farið sex sinnum í úrslitaleikinn.

Wolfsburg leiðir í einvíginu, 1-0, en seinni leikurinn er spilaður á heimavelli franska liðsins.

Leikir dagsins:
16:45 Barcelona - Real Madrid (6-2)
19:00 Lyon - Wolfsburg (0-1)
Slapp
banner
banner