Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 20:17
Brynjar Ingi Erluson
HM-hetjan framlengir við Frankfurt til 2028
Mario Götze í leik með Frankfurt
Mario Götze í leik með Frankfurt
Mynd: EPA
Þýski sóknartengiliðurinn Mario Götze skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við Eintracht Frankfurt.

Götze er 33 ára gamall og verið á mála hjá Frankfurt frá 2023 en samningur hans við félagið átti að renna út í sumar.

Á þessum tíma hefur hann spilað 148 leiki og komið að 30 mörkum, en hann var í stóru hlutverki í Meistaradeildinni á þessu tímabili en hlutverk hans í deildinni verið aðeins minna.

Albert Riera og félagar í Frankfurt eru ánægðir með hans framlag, bæði innan sem utan vallar, og hafa því ákveðið að framlengja samning Götze sem gildir nú til 2028.

Götze er risastórt nafn í Þýskalandi, en hann lék áður með Borussia Dortmund og Bayern München. Eftirminnilegasta augnablik hans á ferlinum kom árið 2014 er hann skoraði sigurmark Þjóðverja í framlengdum úrslitaleik gegn Argentínu á HM.


Slapp
banner