Ása Kristín Tryggvadóttir hefur samið við Val og mun verða mikilvægur hluti af meistaraflokki á komandi tímabili, en félagið greinir frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
Ása hefur fengið tækifærin með meistaraflokki á undirbúningstímabilinu og nýtt það vel.
Hún er fædd 2009 og uppalin í yngri flokkum Vals þar sem hún hefur skarað fram úr í öllum flokkum.
Valsarar greina frá því að þjálfarateymið sé mjög ánægt og hrifið af því hvernig hún hefur aðlagast umhverfinu með tæknilegri getu og vinnusemi sem hafa gert hana að mikilvægum hluta hópsins.
„Við erum afar ánægð með að hafa Ásu hjá okkur áfram í Val. Hún er hæfileikaríkur leikmaður með mikla möguleika til að blómstra innan þess sem við erum að gera. Ása klæðist rauðu treyjunni með stolti og færir hópnum frábæra vinnusemi, gæði og orku. Við teljum að hún hafi alla burði til að verða lykilleikmaður hjá okkur og hlökkum til að styðja við áframhaldandi þróun hennar á hæsta stigi,“ sagði Gareth Owen, tæknistjóri Vals, um Ásu.


