Maignan orðaður við Chelsea á ný - West Ham lítur í kringum sig eftir nýjum stjóra - Ensk stórlið vilja Bremer
Gummi Kri um Jökul: Hann gerir töluvert meira gagn þar heldur en upp í stúku
Heimir: Ef það er einhver sem ég vil að fái svona færi þá er það Bjarni, fyrir utan Björn Daníel
Markmiðið sett eftir Bröndby leikinn: „Búnir að standast prófið hingað til“
Þórarinn Ingi: Ég er bara að vinna hérna og hjálpa til eins og ég get
Segir Sigurð besta dómara landsins - „Búinn að fá alveg nóg og lét gamminn geisa“
Gylfi: Tímabært fyrir dómarana að fá VAR hjálp
Hallgrímur Jónasson: Ég fór á háu nóturnar
Óskar Hrafn: Við höfum örlögin í okkar höndum
Láki: Stundum þarf maður að vera pínu bófi
Birnir Snær: Okkur fjölskyldunni líður ótrúlega vel hérna
Alex Freyr: Þurfum að loka svona leikjum 6 til 7-0
Maggi með ákall til stuðningsmanna - „Þurfum að fylla völlinn og búa til alvöru stemningu"
Stefan Ljubicic: Féll allt á einhvern hátt fyrir okkur
Venni: Þetta er bara leikaraskapur og hann kemst upp með það
Ívar Örn: Manni finnst maður oft vera full gamall
Hemmi Hreiðars: Stórkostlegt að vera komnir þetta langt á kornungu liði
Haraldur Freyr: Hjálpar okkur helling að við vorum í þessum leik í fyrra
Gunnar Heiðar: Ég er að verða atvinnulaus núna
Ingvar Freyr: Verður einhver helvítis veisla næstu helgi
Berglind Björg: Ég er bara ótrúlega stolt af þessu
banner
   lau 04. ágúst 2018 16:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ásgeir Börkur: Hættið þessu væli!
Ásgeir Börkur var öflugur á miðjunni hjá Fylki.
Ásgeir Börkur var öflugur á miðjunni hjá Fylki.
Mynd: Raggi Óla
Ásgeir Börkur Ásgeirsson var maður leiksins þegar Fylkir sigraði ÍBV á Hásteinsvelli. Daníel Geir Moritz, fréttaritari Fótbolta.net, spurði Ásgeir hvernig hann slapp við gult spjald í leiknum.

„Hættið þessu væli," sagði Ásgeir þá léttur.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  1 Fylkir

„Ég veit það ekki, mér fannst þetta flestallt 50/50. Kannski átti ég að fá gult spjald, en ég fékk það ekki og ég er ánægður með það."

Þetta var langþráður sigur fyrir fyrir Fylki, fyrsti sigurinn síðan í byrjun júnímánaðar.

„Það er auðvitað klisja og hundleiðinlegt að segja það aftur og aftur en það er bara einn leikur í einu. Við teiknuðum upp níu leikja mót eftir að Ólafur Ingi kom heim. Við tökum einn leik í einu, söfnum stigum og vonandi nægir það okkur."

ÍBV byrjaði betur en það var Fylkir sem komst yfir og skoraði eina markið. Fylkir stóð sig frábærlega í varnarleiknum eftir markið.

„Maður skapar sína eigin heppni. Þeir fengu eitthvað af færum en við vörðumst því vel."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner