„Ég er rosalega sáttur við sigurinn en ekki sáttur við spilamennsku míns liðs," sagði Ólafur Brynjólfsson, þjálfari Vals eftir 4-0 sigur á KR í kvöld.
Hann segir liðið ekki hafa látið boltann ganga nægilega vel og vildi hann sjá meiri gæði.
Hann segir liðið ekki hafa látið boltann ganga nægilega vel og vildi hann sjá meiri gæði.
Lestu um leikinn: KR 0 - 4 Valur
„Ég vildi fá meira flæði á boltann, ná að skapa meira og meiri gæði."
Hann segir spilamennskuna hafa batnað í seinni hálfleik og sérstaklega eftir að liðið skoraði tvö mörk, snemma í honum.
„Það létti á pressuna að fá fyrsta markið og svo kom annað markið og þá fórum við að skapa miklu betri færi og láta boltann ganga betur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















