Andreas Albech, danski bakvörðurinn í liði Vals var himinlifandi með 2-0 bikarsigurinn á ÍBV í dag.
Sigurinn var aldrei í mikilli hættu og var betra liðið sem vann leikinn að lokum og segir Albech að honum hafi dreymt um þetta þegar hann skrifaði undir.
Sigurinn var aldrei í mikilli hættu og var betra liðið sem vann leikinn að lokum og segir Albech að honum hafi dreymt um þetta þegar hann skrifaði undir.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 0 ÍBV
„Þetta er frábær tilfinning, það er erfitt að útskýra hana. Þegar ég frétti að Valur var í undanúrslitum þegar ég skrifaði undir þá dreymdi mig þetta."
Hann var mjög ánægður með frammistöðu liðsins.
„Þetta var frábær liðsframmistaða og ég er mjög ánægður og stuðningsmennirnir eru frábærir."
„Það hjálpaði mikið að við skoruðum tvö mörk snemma leiks og mér fannst við aldrei líklegir til að tapa því, við spiluðum ekki svo vel en við vörðumst eins og menn."
Hann segir Sigurð Egil hafa getað skorað þrennu í dag en sættir sig við tvö mörk frá honum.
„Siggi hefði átt að skora annað mark en ég sætti mig við að hann skoraði tvö."
Hann er svo ánægður með sína eigin frammistöðu í dag.
„Ég spilaði vel, ég fékk boltann ekki mikið en ég var góður varnarlega og ég er ánægður með það."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















