Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 16:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Sigurmark úr nánast ómögulegri stöðu
Minteh var hetja Brighton.
Minteh var hetja Brighton.
Mynd: EPA
Burnley hefði þurft sigur í dag.
Burnley hefði þurft sigur í dag.
Mynd: EPA
Það voru tveir leikir að klárast í ensku úrvalsdeildinni núna fyrir stuttu. Óhætt er að segja að fjörið hafi ekki verið mikið í þessum tveimur leikjum.

Sunderland tók á móti Brighton og Burnley fékk Bournemouth í heimsókn.

Staðan var markalaus í hálfleik í báðum þessum leikjum en það fór aðeins að draga til tíðinda í seinni hálfleik í Sunderland. Chris Rigg, sem er 18 ára gamall, skoraði mark fyrir Sunderland sem var dæmt af vegna rangstöðu. Það var frekar tæpt en réttur dómur. Svekkjandi fyrir Rigg sem hefði þarna verið að skora sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni.

Stuttu eftir þetta skoraði svo Brighton. Yankuba Minteh skoraði þá nánast úr ömulegri stöðu. Hann var alveg upp við endalínu en tókst að koma boltanum í netið.

Þetta reyndist eina mark leiksins og sigur Brighton staðreynd. Brighton lyftir sér upp í tíunda sæti með þessum sigri en Sunderland er í tólfta sæti.

Á Turf Moor var markalaust jafntefli niðurstaðan. Það voru alveg færi í leiknum og bæði lið söfnuðu ágætis xG en inn vildi boltinn ekki. Bournemouth er í tíunda sæti en Burnley er átta stigum frá öruggu sæti. Þeir hefðu þurft sigur í dag.

Sunderland 0 - 1 Brighton
0-1 Yankuba Minteh ('58 )

Burnley 0 - 0 Bournemouth
Athugasemdir
banner
banner