Haukar 5 - 0 Ýmir
1-0 Daði Snær Ingason ('11 )
2-0 Pablo Punyed ('16 )
3-0 Jón Gísli Stefánsson ('52 )
4-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('54 )
5-0 Tómas Atli Björgvinsson ('85 )
1-0 Daði Snær Ingason ('11 )
2-0 Pablo Punyed ('16 )
3-0 Jón Gísli Stefánsson ('52 )
4-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('54 )
5-0 Tómas Atli Björgvinsson ('85 )
Haukar unnu stórsigur á Ými í B-deild Lengjubikarsins í morgun, lokatölur voru 5-0.
Daði Snær Ingason kom Haukum á bragðið og svo bætti Pablo Punyed, sem er spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, við öðru marki.
Í seinni hálfleik gerðu Haukar þrjú mörk. Jón Gísli Stefánsson og Sigurður Hrannar Þorsteinsson komu Haukum í 4-0 og bætti Tómas Atli Björgvinsson við fimmta markinu í lokin eftir stoðsendingu Guðjóns Péturs Lýðssonar, þjálfara Hauka. Guðjón Pétur tók við Haukaliðinu eftir síðasta tímabil en fróðlegt verður að sjá hvort hann spili eitthvað í sumar.
Haukar eru á toppi síns riðils í B-deildinni með tíu stig eftir fjóra leiki. Ýmir er með fjögur stig.
Athugasemdir

