Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 21:23
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Ísak spilaði stóra rullu í jöfnunarmarki Köln
Mynd: EPA
Hamburger 1 - 1 Koln
1-0 Fabio Vieira ('39 )
1-1 Said El Mala ('45 )

Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn er Köln gerði 1-1 jafntefli við Hamburger SV í nýliðaslag í þýsku deildinni í dag.

Landsliðsmaðurinn átti fínasta leik hjá Köln sem lenti undir seint í fyrri hálfleiknum.

Fabio Vieira fékk boltann inn fyrir hægra megin og skoraði með því að lyfta boltanum smekklega yfir markvörð gestanna og í netið.

Augnabliki síðar var Ísak ekki langt frá því að jafna metin er hann fékk sendingu í teignum en markvörður Hamburger varði fast skot Ísaks aftur fyrir endamörk.

Tilraun hans hjálpaði Köln hins vegar að ná jöfnunarmarkinu, en það gerði Said El Mala eftir hornspyrnuna. El Mala verið ótrúlegur með Köln á tímabilinu og mun hann líklega fá nóg af tilboðum í sumarglugganum.

Í síðari gátu bæði lið stolið öllum stigunum þar sem öll bestu færin komu eftir föst leikatriði. Hamburger átti skalla rétt framhjá eftir hornspyrnu og á hinum endanum var Köln nálægt því að gera sigurmarkið en skalli Eric Martel hafnaði í hliðarnetinu.

Jafntefli niðurstaðan og allt í allt líklega sanngjörn úrslit en Hamburger er í 10. sæti með 30 stig á meðan Köln er í 13. sæti með 25 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern W 18 17 1 0 71 6 +65 52
2 Wolfsburg W 17 12 2 3 53 26 +27 38
3 Eintracht Frankfurt W 19 10 3 6 46 35 +11 33
4 Hoffenheim W 18 10 2 6 33 23 +10 32
5 Werder W 18 9 5 4 28 24 +4 32
6 Bayer W 19 10 1 8 29 28 +1 31
7 Freiburg W 20 9 3 8 34 32 +2 30
8 Koln W 19 7 4 8 23 24 -1 25
9 Union Berlin W 20 6 5 9 30 38 -8 23
10 RB Leipzig W 20 6 4 10 32 40 -8 22
11 Nurnberg W 20 5 4 11 27 49 -22 19
12 Hamburger W 19 3 5 11 21 45 -24 14
13 Essen W 19 2 6 11 16 41 -25 12
14 Carl Zeiss Jena W 18 2 3 13 16 48 -32 9
Athugasemdir
banner
banner