Spænski miðvallarleikmaðurinn Gavi er að snúa aftur á völlinn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu sex mánuði, en hann er í leikmannahópnum hjá Barcelona sem mætir Sevilla í dag.
Gavi, sem er 21 árs gamall, hefur verið óheppinn með meiðsli síðustu þrjú ár.
Hann sleit krossband í nóvember 2023 og sneri ekki aftur fyrr en tæpu ári síðar.
Snemma á þessu tímabili meiddist hann aftur á hné og verið frá síðan en Barcelona greindi frá því gleðifregnum að hann sé nú klár í slaginn.
Gavi var eitt sinn talinn efnilegasti leikmaður heims. Hann var valinn gulldrengur ársins fyrir fjórum árum og tvisvar orðið Spánarmeistari með Börsungum.
Hann á 28 A-landsleiki og fimm mörk að baki með Spánverjum og var meðal annars í liðinu sem vann Þjóðadeildina árið 2023.
Athugasemdir


