Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 15. mars 2026 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Lærisveinn Heimis á óskalista Dortmund og Milan
Mynd: EPA
Írski framherjinn Troy Parrott er á óskalista Borussia Dortmund og AC Milan fyrir sumargluggann en þetta kemur fram í grein Football Insider.

Parrott er 24 ára gamall uppalinn Tottenham-maður sem gekk í raðir AZ Alkmaar árið 2024.

Hann náði aldrei að skapa sér nafn hjá Tottenham en er svo sannarlega búinn að gera það í dag, bæði með AZ og með írska landsliðinu.

Parrott komst á ratsjá stórliða í nóvember þegar hann skoraði fimm mörk í landsleikjaglugganum með Írum og kom þeim í umspil um sæti á HM.

Þá hefur hann skorað 26 mörk í 38 leikjum í öllum keppnum með AZ á tímabilinu og nú síðast skoraði hann tvennu í 2-1 sigri á Slavía Prag í 16-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu.

Football Insider segir að Borussia Dortmund og AC Milan hafi verulegan áhuga á að fá Parrott í sumar. Fjölmörg félög eru á eftir Parrott en einnig er talið að úrvalsdeildarfélögin Leeds, hans gamla félag Tottenham og West Ham hafi áhuga.

Parrott er samningsbundinn AZ til 2029 en félagið er sagt opið fyrir því að selja hann fyrir rétt verð í sumar.
Athugasemdir
banner
banner