Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 13:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Genoa á góðu skriði - Mikael Egill byrjaði
Mynd: EPA
Verona 0 - 2 Genoa
0-1 Vitinha ('61 )
0-2 Leo Ostigard ('86 )

Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa sem lagði Verona af velli í ítölsku deildinni í dag.

Vitinha kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma leik og hann stimplaði sig rækilega inn.

Það tók hann tæpa mínútu að skora og koma Genoa yfir. Hann vann boltann á miðjunni og skoraði með glæsilegu skoti vel fyrir utan vítateiginn. Leo Ostigard innsiglaði sigurinn undir lokin með skallamarki.

Genoa hefur nælt í níu stig úr síðustu fjórum leikjum og situr í 13. sæti með 33 stig. Verona er í næst neðsta sæti með 18 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Cagliari 29 7 9 13 30 39 -9 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Pisa 29 2 12 15 21 48 -27 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner
banner
banner