'Finalissima' leiknum milli Spánar og Argentínu hefur verið aflýst vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum. Leikurinn átti að fara fram 27. mars í Katar.
Um er að ræða úrslitaleik milli Evrópumeistarana og Suður-Ameríkumeistarana.
Um er að ræða úrslitaleik milli Evrópumeistarana og Suður-Ameríkumeistarana.
Eftir fund milli UEFA og skipuleggjenda í Katar var komist að þeirri niðurstöðu að leikurinn gæti ekki farið fram vegna stöðunnar í álfunni.
UEFA lagði til að leikurinn færi fram á Santiago-Bernabeu, heimavelli Real Madrid, en því hafnaði argentínska fótboltasambandið og lagði til að leikið yrði eftir HM. Hinsvegar er ekki laust í dagskrá spænska liðsins og því ákveðið að aflýsa leiknum.
Finalissima fór fram 1985 og 1993. Leikurinn var svo endurvakinn 2022. Þá vann Argentína 3-0 sigur gegn Ítalíu á Wembley.
Athugasemdir



