Tuur Rommens skoraði eina markið þegar Rangers vann nauman 1-0 sigur gegn stjóralausu liði St Mirren. Markið kom á 31. mínútu.
Glasgow stórliðin unnu því bæði um helgina en Celtic lagði Motherwell 3-1 í gær.
Liðin náðu því bæði að minnka bilið í topplið Hearts sem tapaði 1-0 gegn Kilmarnock.
Glasgow stórliðin unnu því bæði um helgina en Celtic lagði Motherwell 3-1 í gær.
Liðin náðu því bæði að minnka bilið í topplið Hearts sem tapaði 1-0 gegn Kilmarnock.
Tómas Bent Magnússon fór meiddur af velli í fyrri hálfleik eftir höfuðhögg. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem talið var líklegt að hann væri kinnbeinsbrotinn.
Hearts er með 63 stig á toppnum, Celtic með 61 og Rangers 60.
Athugasemdir




