Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   sun 16. ágúst 2020 19:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Andri Hjörvar: Sýndu enn og aftur klærnar og klóruðu sig til baka
Kvenaboltinn
Andri lengst til hægri.
Andri lengst til hægri.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Mér líður ógeðslega vel að hafa komið til baka undir lokin og að liðið mitt hafi enn og aftur sýnt klærnar og klórað sig til baka eftir að hafa lent undir. Þetta stig gæti skipt máli þegar upp er staðið, stig er stig en það er ekkert launungarmál að við komum til að vinna. Það verður að bíða betri tíma," sagði Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 Þór/KA

„Staðan á hópnum er fín en ég er ekkert að ljúga neinu að hópurinn gæti veirð stærri. Við ákváðum að skipta tveimur leikmönnum í Tindastól um daginn. Við erum í hugleiðingum um að fá inn leikmenn, markaðurinn er skrítinn í dag en við erum með augun opin."

Andri var spurður út í tilfærslu sína undir lokin þegar hann ákveður að færa Örnu Sif Ásgrímsdóttur úr varnarlínunni fram í framlínuna. Andri segir að Arna sé leikmaður sem geti leyst allar stöður og í dag hafi heppnast að færa hana fram á völlinn.

Arna Sif var hættuleg inn á vítateig Stjörnunnar í dag eftir hornspyrnur og átti nokkur ákjósanleg skallafæri. Er Andri svekktur með að einn af þessum sköllum hafi ekki ratað í netið?

„Já að sjálfsögðu, við leggjum mikið upp úr föstum leikatriðum. Þar er Arna Sif manna sterkust í teignum. Ég get alveg sagt þér það að hún er örugglega hrikalega svekkt að hafa ekki náð að skora. Það þýðir samt ekkert að missa einhvern svefn yfir þessu," sagði Andri að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
banner