Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   lau 20. mars 2021 16:04
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Frábær endurkomusigur Bologna
Crotone 2 - 3 Bologna
1-0 Junior Messias ('32)
2-0 Simy ('40, víti)
2-1 Adama Soumaoro ('62)
2-2 Jerdy Schouten ('70)
2-3 Andreas Skov Olsen ('84)

Crotone tók á móti Bologna í fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum og var Andri Fannar Baldursson á varamannabekknum hjá Bologna.

Fyrri hálfleikurinn var opinn og fjörugur en það voru heimamenn sem nýttu færin sín og leiddu 2-0 í leikhlé. Junior Messias skoraði á 32. mínútu og svo tvöfaldaði Simy forystuna úr vítaspyrnu.

Andreas Skov Olsen og Jerdy Schouten komu inn í leikhlé og við það breyttist leikurinn. Adama Soumaoro minnkaði muninn og svo jafnaði Schouten með glæsilegu skoti á 70. mínútu.

Andreas Skov Olsen gerði svo sigurmark Bologna á lokakaflanum og tryggði liðinu þannig frábæran endurkomusigur á botnliðinu.

Bologna er um miðja deild með 34 stig eftir 28 umferðir. Crotone er með 15 stig, átta stigum frá öruggu sæti.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Atalanta 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Bologna 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Cagliari 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Como 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Cremonese 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Fiorentina 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Genoa 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Inter 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Juventus 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Lazio 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Lecce 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Milan 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Napoli 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Parma 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Pisa 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Roma 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Sassuolo 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Torino 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Empoli 38 6 13 19 33 59 -26 31
19 Venezia 38 5 14 19 32 56 -24 29
19 Udinese 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Verona 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Monza 38 3 9 26 28 69 -41 18
Athugasemdir
banner