Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 21:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Stjarnan með frábæran sigur á Skaganum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 0 - 3 Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén ('41 )
0-2 Baldvin Þór Berndsen ('50 , sjálfsmark)
0-3 Andri Rúnar Bjarnason ('53 )
Lestu um leikinn

Gísli Laxdal Unnarsson fékk dauðafæri eftir 36 mínútna leik. Hann var kominn einn á móti Árna Snæ Ólafssyni en skotið beint á markmanninn.

Stuttu síðar komst Benedikt Waren í upplagt færi og hann gerði engin mistök og skoraði fyrsta mark leiksins framhjá Árna Marinó Einarssyni í marki Skagamanna.

Skagamenn fengu tvö frábær færi strax í upphafi seinni hálfleiks en Erik Tobias Sandberg og Ómar Björn Stefánsson náðu ekki að skora.

Aftur refsuðu Stjörnumenn en Baldvin Þór Berndsen varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Stuttu síðar innsiglaði Andri Rúnar Bjarnason sigur Stjörnunnar þegar hann komst einn í gegn og fór framhjá Árna og skoraði á opið markið.

Stjarnan stekkur upp í 3. sæti með 20 stig en ÍA er áfram á botninum með níu stig.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 12 8 2 2 24 - 13 +11 26
2.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
3.    Stjarnan 12 6 2 4 23 - 20 +3 20
4.    Vestri 12 6 1 5 13 - 9 +4 19
5.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    FH 12 4 2 6 17 - 16 +1 14
8.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
9.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
10.    KR 11 3 4 4 30 - 26 +4 13
11.    KA 12 3 3 6 10 - 20 -10 12
12.    ÍA 12 3 0 9 13 - 31 -18 9
Athugasemdir