Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. janúar 2015 13:28
Arnar Geir Halldórsson
Fótbolta.net mótið: Brynjar Ásgeir sá um ÍA
Brynjar var allt í öllu hjá FH í dag
Brynjar var allt í öllu hjá FH í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 1-2 FH
0-1 Brynjar Ásgeir Guðmundsson
1-1 Garðar Gunnlaugsson
1-2 Brynjar Ásgeir Guðmundsson
Rautt spjald: Þórður Þ. Þórðarson (ÍA)

Skagamenn fengu FH-inga í heimsókn í Akraneshöllina í morgun í síðasta leik riðils 1 í A-deild Fótbolta.net mótsins.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Brynjar Ásgeir Guðmundsson FH-ingum yfir í upphafi seinni hálfleiks. Nokkrum mínútum síðar fékk Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður ÍA, að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Garðar Gunnlaugsson jafnaði metin fyrir ÍA með marki beint úr aukaspyrnu en Brynjar Ásgeir gerði sigurmark leiksins á lokaandartökunum og tryggði FH-ingum annað sæti riðilsins.

FH-ingar spila um 3. sætið í mótinu í næstu viku á meðan Skagamenn spila um 5. sætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner