Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. júní 2016 21:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo stoppaði öryggisverði - Leyfði „selfie“
Inn með jákvæðni - út með neikvæðni
Inn með jákvæðni - út með neikvæðni
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo hefur eins og flestir vita ekki átt sérstakt Evrópumót með Portúgal hingað til.

Hann var pirraður eftir jafntefli gegn Íslandi og lét kjánaleg ummæli um íslenska liðið falla eftir leik.

Hann varð svo fyrir því óláni að klikka á vítaspyrnu í öðru jafntefli Portúgal í kvöld, en liðið mætti Austurríki.

Eftir leik sýndi Ronaldo hins vegar hversu mikið gæðablóð hann er í raun og veru.

Mikill aðdáandi Ronaldo hljóp inn á völlinn eftir leik og sóttist eftir því að fá „selfie" með Portúgalanum. Öryggisverðir reyndu að koma í veg fyrir það, en Ronaldo stöðvaði þá og leyfði aðdáandanum að taka mynd.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu, en gott er að sjá þetta frá Ronaldo eftir neikvæðnina sem hefur umkringt hann síðustu daga.


Athugasemdir
banner
banner
banner