Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 18. júlí 2018 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Reynir með fullt hús stiga eftir átta marka leik
Magnús Þórir lék síðast í Pepsi-deildinni 2015 og Inkasso 2016.
Magnús Þórir lék síðast í Pepsi-deildinni 2015 og Inkasso 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði hafði betur gegn SR í afar fjörugum átta marka leik í 4. deildinni í kvöld.

Reynismenn eru þar af leiðandi enn með fullt hús stiga á toppi B-riðilsins, 27 stig úr 9 leikjum. Magnús Þórir Matthíasson skoraði eitt af fimm mörkum Reynis í dag og er þar með markahæstur í riðlinum, ásamt Guillermo Gonzalez Lamarca, með tíu mörk.

Guillermo tókst ekki að skora er Skallagrímur rétt marði Mídas. Ingvi Þór Albertsson gerði eina mark leiksins undir lokin. Skallagrímur er í öðru sæti, sex stigum eftir Reyni.

Í C-riðli unnu Álafoss og GG sína leiki. GG er í toppbaráttunni og lenti óvænt tveimur mörkum undir gegn Afríku en náði að koma til baka og vinna 4-2.

Álafoss hafði þá betur gegn Ísbirninum og er um miðja deild. GG er tveimur stigum frá toppliðum Álftaness og KFS.

B-riðill:
Reynir S. 5 - 3 SR
1-0 Garðar Sigurðsson ('4)
2-0 Max Grammel ('10)
2-1 Atli Páll Pétursson ('21)
3-1 Garðar Sigurðsson ('41)
4-1 Magnús Þórir Matthíasson ('50)
4-2 Marteinn Einarsson ('58)
4-3 Hákon Gunnarsson ('69, víti)
5-3 Guðmundur Gísli Gunnarsson ('84)

Hvíti riddarinn 2 - 2 Úlfarnir
1-0 Markaskorara vantar ('2)
2-0 Markaskorara vantar ('19, víti)
2-1 Markaskorara vantar ('44)
2-2 Markaskorara vantar ('48)

Skallagrímur 1 - 0 Mídas
1-0 Ingvi Þór Albertsson ('90)

C-riðill:
Álafoss 3 - 1 Ísbjörninn
1-0 Benedikt Óli Sævarsson ('27)
2-0 Aron Elfar Jónsson ('29)
2-1 Arnar Pálsson ('50)
3-1 Orri Eyþórsson ('90)

Afríka 2 - 4 GG
1-0 Markaskorara vantar ('8)
2-0 Markaskorara vantar ('43, víti)
2-1 Markaskorara vantar ('44)
2-2 Markaskorara vantar ('48)
2-3 Markaskorara vantar ('59)
2-4 Markaskorara vantar ('61)
Rautt spjald: Leikmaður óþekktur, Afríka ('62)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner