Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. ágúst 2018 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lascelles: Við getum tekið margt jákvætt úr þessum leik
Mynd: Getty Images
Newcastle og Totteham mættust í gær í öðrum leik ensku úrvalsdeildarinnar þetta tímabilið þar sem gestirnir höfðu betur, 1-2.

Jamaal Lascelles lék allan leikinn í vörn Newcastle í gær en hann segir að þrátt fyrir tap þá geti liðið tekið margt jákvætt úr leiknum.

„Við getum tekið margt jákvætt úr þessum leik, við lögðum mikið á okkur og gerðum þeim erfitt fyrir."

„Þegar maður lítur til baka og skoðar mörkin sem við fengum á okkur þá getur maður séð að við hefðum átt að gera betur í þeim tilvikum en ef maður skoðar það hvað við gerðum vel í dag (gær) þá er ekki annað hægt að segja en að við höfum spilað mjög vel og við sköpuðum okkur mörg færi. Nú þurfum við að halda áfram á þessari braut," sagði Lascelles.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner