Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. ágúst 2018 12:03
Ívan Guðjón Baldursson
David Silva byrjar ekki gegn Arsenal
Mynd: Getty Images
Enski fjölmiðlar segja að David Silva verði ekki í byrjunarliði Manchester City gegn Arsenal vegna meiðsla.

Silva hefur verið lykilmaður í liði Manchester City að undanförnu og gæti náð hluta af leiknum í dag en Pep Guardiola ákvað að taka ekki óþarfa áhættu.

Bernardo Silva eða Phil Foden munu fylla í stöðuna sem losnar á miðjunni.

Spænskur fréttamaður sem fylgist náið með Man City segir að Pep myndi setja Silva í byrjunarliðið væri þetta mikilvægur leikur.

Fjarvera Silva gæti þó reynst Englandsmeisturunum dýrkeypt enda fá skilaboð sterkari heldur en sigur á Emirates í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner