Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. október 2018 11:00
Elvar Geir Magnússon
Vermaelen frá í sex vikur
Vermaelen er meiddur.
Vermaelen er meiddur.
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest að varnarmaðurinn Thomas Vermaelen verði frá í sex vikur eftir að hafa meiðst í landsliðsverkefni.

Vermaelen entist aðeins í 73 mínútur þegar Belgía vann 2-1 sigur gegn Sviss í Þjóðadeildinni á föstudag, hann fór af velli vegna meiðsla aftan í læri.

Samuel Umtiti er á meiðslalistanum með hnémeiðsli og spilar ekki næstu mánuði. Það mun því mikið mæða á Gerard Pique og Clement Lenglet næstu vikurnar.

Vermaelen er 32 ára og hefur mikið verið á meiðslalistanum undanfarin ár. Hann hefur aðeins leikið 50 deildarleiki síðustu sex tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner