Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. október 2018 16:22
Elvar Geir Magnússon
Martial að gera nýjan risasamning við Man Utd
Martial framlengir við Man Utd á næstu dögum samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Martial framlengir við Man Utd á næstu dögum samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho virðist hafa snúist hugur varðandi franska sóknarleikmanninn Anthony Martial.

Enskir fjölmiðlar segja að Martial sé nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Manchester United.

Sagt er að Martial hafi verið nálægt því að vera seldur í sumar en samband hans og Mourinho var mikill fjölmiðlamatur.

Mourinho var ósáttur þegar Martial mætti ekki til baka í æfingaferð eftir að hafa verið viðstaddur fæðingu barns síns.

The Sun segir að Martial muni fá 130 þúsund pund í vikulaun.

Martial, sem er 22 ára, hefur náð að vinna Portúgalann aftur á sitt band.

United er í áttunda sæti en liðið mætir Chelsea í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner