Wayne Rooney, framherji DC United, segist ætla að ljúka ferlinum í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann hefur útilokað endurkomu í ensku úrvalsdeildina.
Hinn 33 ára gamli Rooney fær sérstakan kveðjuleik með enska landsliðinu á morgun þegar bandaríska landsliðið mætir á Wembley.
Hinn 33 ára gamli Rooney fær sérstakan kveðjuleik með enska landsliðinu á morgun þegar bandaríska landsliðið mætir á Wembley.
„Ég tók ákvörðun um að fara til Bandaríkjanna eins og þið vitið og ég ætla að halda mig við hana. Það er mikilvægt fyrir mig að leggja allt í DC United," sagði Rooney á fréttamannafundi í dag.
„Ég hef séð umræðu um að ég komi aftur á láni hingað en ég er ekki tilbúinn í það."
Athugasemdir