Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. janúar 2019 16:50
Arnar Helgi Magnússon
Þýskaland: Afar svekkjandi úrslit fyrir Alfreð
Plea tryggði sigur.
Plea tryggði sigur.
Mynd: Getty Images
Fimm leikjum er nú lokið í þýsku úrvalsdeildinni en stórleikur umferðarinnar verður spilaður í kvöld þegar RB Leipzig tekur á móti Dortmund.

Borussia Mondengladbach sótti þrjú góð stig þegar liðið mætti Bayer Leverkusen. Með sigrinum er liðið einungis þremur stigum frá Bayern Munchen.

Mainz gerði góða ferð til Stuttgart og hirti öll stigin þrjú af heimamönnum með sannfærandi frammistöðu. Mainz komst í 0-3 en Stuttgart náði að klóra í bakkann með tveimur mörkum undir lok leiks.

Eintracht Frankfurt vann sannfærandi heimasigur á Freiburg og Werder Bremen sótti góðan útisigur gegn Hannover 96.

Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem að tók á móti Dusseldorf. Gestirnir frá Dusseldorf komust yfir á 45. mínútu með marki frá Marvin Ducksch.

Jonathan Schmid jafnaði fyrir Augsburg á 64. mínútu en sigurmark Dusseldorf kom á 89. mínútu leiksins.

Afar svekkjandi úrslit fyrir Alfreð Finnbogason og hans lið sem færast nær botninum.

Bayer 0 - 1 Borussia M.
0-1 Alassane Plea ('37 )

Stuttgart 2 - 3 Mainz
1-0 Santiago Ascacibar ('22 , sjálfsmark)
1-1 Jean-Philippe Mateta ('28 )
1-2 Alexander Hack ('72 )
2-2 Nicolas Gonzalez ('83 )
3-2 Marc-Oliver Kempf ('85 )

Eintracht Frankfurt 3 - 1 Freiburg
1-0 Sebastien Haller ('36 )
2-0 Ante Rebic ('40 )
3-0 Luka Jovic ('45 )
3-1 Nils Petersen ('69 )

Augsburg 1 - 2 Fortuna Dusseldorf
0-1 Marvin Ducksch ('45 )
1-1 Jonathan Schmid ('64 )
1-2 Benito Raman ('89 )

Hannover 0 - 1 Werder
0-1 Milot Rashica ('32 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner
banner