Jonjo Shelvey og Karl Darlow, leikmenn Newcastle, tóku þátt í hópslagsmálum fyrir utan pizzastað þar í borg um síðustu helgi en Daily Mail segir frá þessu.
Þeir félagar höfðu verið úti að skemmta sér þegar aðilar fóru að öskra að þeim ókvæðisorðum.
Þeir félagar höfðu verið úti að skemmta sér þegar aðilar fóru að öskra að þeim ókvæðisorðum.
Shelvey ku hafa reiðst þegar að aðili gerði grín að hárleysi hans.
Myndbandsupptökur sýna að Darlow sparkaði í mann sem lá liggjandi í látunum og þá sést þegar Shelvey er ýtt í burtu þegar hann ætlaði að blanda sér í lætin.
Sjö klukkutímum eftir slagsmálin voru leikmennirnir mættir í flug til Kína þar sem Newcastle er í æfingaferð þessa dagana en liðið tapaði 4-0 gegn Wolves í fyrradag.
Athugasemdir