Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 21. júlí 2019 17:21
Arnar Helgi Magnússon
Svíþjóð: Gummi og Óttar komu inn á í sigrum
Mynd: Getty Images
Guðmundur Þórarinsson byrjaði á varamannabekk IFK Norrköping þegar liðið mætti Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Norrköping mætir Liepäja í Evrópudeildinni á fimmtudag og það má ætla að það sé ástæðan fyrir því að Gummi hafi byrjað á bekknum.

Leiknum lauk með öruggum sigri Norrköping, 3-0. Gummi kom inn á á 52. mínútu en þá var staðan orðin 3-0.

Norrköping situr í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.

Malmö fór illa að ráði sínu
Arnór Ingvi Traustason var ekki í leikmannahóp liðsins en hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í leik um síðustu helgi.

Malmö, sem situr á toppi deildarinnar, gerði 1-1 jafntefli við Sirius sem er í neðri hluta deildarinnar.

Sirius komst yfir á 25. mínútu en Anders Christiansen jafnaði fyrir Malmö rúmum tíu mínútum síðar. Lokatölur 1-1.

Óttar kom inná í sigri
Mjällby sigraði Halmstad í Superettunni í morgun, 2-0. Óttar Magnús Karlsson byrjaði á varamannabekk Mjällby en kom inná þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Mjällby situr í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum frá Varberg sem er á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner