Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. ágúst 2019 19:00
Oddur Stefánsson
Daniel James jafnaði met Solskjær
Mynd: Getty Images
Það fór eflaust ekki framhjá fótboltaáhugamönnum landsins þegar Manchester United vann Chelsea 4 - 0 á Old Traffod síðasta sunnudag.

Marcus Rashford og Martial sáu um markaskorun United áður en að hinn 21 árs gamli Daniel James kom inná fyrir Andreas Pereira eftir 74 mínútur.

James skoraði síðan eftir sjö mínútur í sínum fyrsta keppnisleik með United og jafnaði þar með met Ole Gunnar Solskjaer þjálfara liðsins.



Daniel James kom frá Swansea fyrr í sumar og er strax farinn að hafa áhrif á lið United sem leikur næst við Úlfana 19. ágúst.

Athugasemdir
banner
banner