Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 13. september 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía um helgina - Juventus heimsækir Fiorentina
Lukaku er búinn að skora tvö deildarmörk fyrir Inter, þeir fá Udinese í heimsókn á morgun.
Lukaku er búinn að skora tvö deildarmörk fyrir Inter, þeir fá Udinese í heimsókn á morgun.
Mynd: Getty Images
Ítalski boltinn verður á sínum stað þessa helgina, þrír leikir fara fram á morgun laugardag. Ítalíumeistararnir í Juventus heimsækja Fiorentina í fyrsta leik helgarinnar.

Napoli og Sampdoria eigast við klukkan 16:00 og lokaleikur morgundagsins er viðureign Inter og Udinese, flautað verður til leiks klukkan 18:45.

Á sunnudaginn fara fram 6 leikir, Genoa og Atalanta mætast í fyrsta leik dagsins klukkan 10:30.

Klukkan 13:00 verður flautað til leiks í þremur leikjum, Spal tekur á móti Lazio, Parma mætir Cagliari og Brescia fær Bologna í heimsókn.

Klukkan 16:00 fær Roma Sassuolo í heimsókn og deginum lýkur svo með leik Verona og AC Mílan.

Þriðju umferð deildarinnar lýkur með viðureign Torino og Lecce á mánudagskvöld.

Laugardagur 14. september
13:00 Fiorentina - Juventus (Stöð 2 Sport 2)
16:00 Napoli - Sampdoria (Stöð 2 Sport 3)
18:45 Inter - Udinese (Stöð 2 Sport 3)

Sunnudagur 15. september
10:30 Genoa - Atalanta
13:00 Spal - Lazio
13:00 Parma - Cagliari
13:00 Brescia - Bologna
16:00 Roma - Sassuolo (Stöð 2 Sport 4)
18:45 Verona - Milan (Stöð 2 Sport 3)

Mánudagur 16. september
18:45 Torino - Lecce
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner