Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. ágúst 2021 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea á eftir efnilegum leikmanni Saint-Etienne
Lucas Gourna-Douath hér til vinstri í leik með Saint-Etienne
Lucas Gourna-Douath hér til vinstri í leik með Saint-Etienne
Mynd: EPA
Lucas Gourna-Douath er 17 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður, hann er á mála hjá franska úrvalsdeildarfélaginu Saint-Etienne.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Saint-Etienne í september í fyrra og hefur ekki litið til baka síðan, leikið 27 leiki fyrir félagið.

Frammistaðan hans hefur vakið verðskuldaða athygli og nú segja fjölmiðlar í Frakklandi að Chelsea hafi spurst fyrir um leikmanninn.

Atalanta er sagt hafa boðið 10 milljónir evra í leikmanninn en Saint-Etienne talið það alltof lágt tilboð. Þá hafa þýsku félögin Borussia Dortmund og Bayer Leverkusen sýnt honum áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner