Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. september 2019 14:00
Elvar Geir Magnússon
Teemu Pukki leikmaður mánaðarins
Teemu Pukki.
Teemu Pukki.
Mynd: Getty Images
Teemu Pukki hefur verið verið verðlaunaður fyrir magnaða byrjun sína á tímabilinu en hann hefur verið valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni fyrir ágúst.

Finnski landsliðsmaðurinn skoraði magnaða þrennu gegn Newcastle og náði einnig að skora gegn Liverpool og Chelsea.

Raheem Sterling, Kevin De Bruyne, Mason Mount, Ashley Barnes og Tyrone Mings voru einnig tilnefndir sem leikmaður mánaðarins.

Pukki, sem er 29 ára, endaði sem markakóngur Championship-deildarinnar á síðasta tímabili þegar Norwich endaði í toppsæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner