Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Elís Þrándarson er að gera gott mót í Danmörku með OB og þá sérstaklega síðasta mánuðinn en hann er í liði mánaðarins hjá Tipsbladet.
Aron Elís og félagar í OB sitja í 9. sæti deildarinnar með 19 stig en liðið á honum margt að þakka því hann hefur haldið því á floti með hverri frábæru frammistöðunni á fætur annarri.
Fyrir það er hann í liði mánaðarins hjá Tipsbladet.
„Þrándarson er ein af ósýnilegu hetjum dönsku deildarinnar og er eitt af fyrstu nöfnunum í byrjunarliði OB. Gerir góða hluti hliðina á Jens Jakob Thomasen og tölurnar sýna það að hann er sterkur einvígum og er mikilvægur fyrir jafnvægi liðsins," segir í umsögn Tipsbladet.
Frammistaða Arons hefur vakið mikla athygli og var hann til að mynda valinn í A-landsliðið fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni HM og kom hann við sögu í báðum leikjunum. Hann hafði einungis spilað sex vináttulandsleiki fram að leikjunum í síðasta mánuði.
Athugasemdir