Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 03. júlí 2019 13:03
Elvar Geir Magnússon
Buffon í læknisskoðun á morgun
Buffon snýr aftur.
Buffon snýr aftur.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Búist er við því að Gianluigi Buffon fari í læknisskoðun hjá Juventus á morgun áður en hann gengur aftur formlega í raðir félagsins.

Margir af virtustu fjölmiðlamönnum Ítalíu segja að þessi 41 árs markvörður fari í læknisskoðunina á morgun, fimmtudag.

Buffon mun skrifa undir eins árs leikmannasamning og verður varamarkvörður fyrir Wojciech Szczesny.

Talið er að eftir komandi tímabil muni hann svo taka að sér starf hjá félaginu.

Buffon er goðsögn hjá Juventus en hann mun enda feril sinn félaginu þar sem hann lék 656 leiki milli 2001 og 2018 og vann ítalska meistaratitilinn níu sinnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner