Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. júlí 2019 17:15
Fótbolti.net
Spá KV og Kórdrengjum upp í 2. deild
Kórdrengir fagna marki.
Kórdrengir fagna marki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Helgi Finnsson og Magnús Valur Böðvarsson voru gestir í hlaðvarpsþætti Fótbolta.net þar sem þeir ræddu gang mála í þriðju og fjórðu deildinni.

KV og Kórdrengir eru í tveimur efstu sætunum í 3. deildinni í augnablikinu og Ingimar og Magnús Valur spá þessum liðum sæti í 2. deild að ári.

Auk þessara liða eru KF og Vængir Júpíters í toppbaráttunni í augnablikinu.

„Kórdrengir eiga að fara upp og ég held þeir geri það. Þeir bæta sennilega í núna í glugganum. Þeir gera allt til að fara upp. Ég get heldur ekki sagt annað en að vinir mínir í KV fari upp," sagði Ingimar.

„Mér finnst þetta vera tvö sterkustu liðin í deildinni," bætti Magnús Valur við.

KV og Kórdrengir mætast í toppslag í 3. deildinni eftir viku en bæði lið eiga einn leik eftir áður en að því kemur.

Smelltu hér til að hlusta á umræðuna um 3. deildina
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner