Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. október 2019 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Messi í göngunum gegn Inter: Höldum rónni strákar
Mynd: Getty Images
Barcelona var 0-1 undir í hálfleik er liðið fékk Inter í heimsókn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gær.

Leikmenn voru að ganga aftur inn á völlinn þegar myndavél frá Movistar náði orðum Lionel Messi á myndband. Messi var að hvetja liðsfélaga sína áfram út í seinni hálfleikinn.

„Strákar við skulum ekki gera neitt klikkað, höldum rónni og bætum pressuna, bara eins og venjulega," sagði Messi og tók Gerard Pique undir.

„Við verðum að vera duglegir að fara upp í pressuna á sama tíma."

Börsungar mættu mun sterkari til leiks í síðari hálfleik og skópu sigurinn. Lionel Messi lagði upp sigurmarkið fyrir Luis Suarez. 

Hægt er að skoða myndbandið með að smella hér
Athugasemdir
banner
banner
banner