Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 04. júlí 2019 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Liverpool sagt vilja kaupa Dani Ceballos
Mynd: Getty Images
Samkvæmt spænska miðlinum Marca er Liverpool þriðja enska stórliðið sem er á eftir Dani Ceballos, miðjumanni Real Madrid.

Ceballos, sem er 22 ára, hefur verið orðaður við Tottenham og Arsenal á láni út næstu leiktíð en Liverpool er sagt vilja kaupa Spánverjann.


Spænski miðlar hafa verið duglegir að orða Ceballos við Liverpool undanfarið ár og er Jurgen Klopp sagður mikill aðdáandi.

Ceballos var árið 2017 valinn besti leikmaður EM U-21 árs liða. Hann hefur leikið 35 deildarleiki fyrir Real og skorað í þeim 5 mörk.
Athugasemdir
banner
banner