Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 04. nóvember 2019 06:00
Aksentije Milisic
Pulisic: Erum að njóta þess í botn að spila saman
Pulisic fer heim með boltann.
Pulisic fer heim með boltann.
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, segir að hið unga lið Chelsea sé að njóta þess í botn að spila saman undir stjórn Frank Lampard.

Pulisic skoraði í sigri Chelsea á Watford um helgina og þar á undan gerði hann þrennu gegn Burnley. Hann og Tammy Abraham hafa verið að ná vel sama í sóknarleiknum. Liðið hefur skorað 25 mörk í 11 deildarleikjum.

„Það er ótrúlega gaman að spila með þessum strákum. Þeir gera hlutina auðveldari fyrir mig. Þetta er þéttur hópur sem við höfum og strákarnir hjálpa mér ótrúlega mikið. Við erum að njóta þess í botn að spila saman," sagði Pulisic.

„Ég ætla að halda áfram að bæta mig og sýna það og sanna að ég eigi það skilið að spila í hverri viku. Við erum stór klúbbur og við viljum vera sem næst toppnum".

Chelsea hefur unnið fimm deildarleiki í röð og hefur sex stiga forskot á Arsenal sem er í fimmta sæti deildarinnar. Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn gegn Ajax í Meistaradeildinni.


Athugasemdir
banner
banner