Hlusta á tilboð í Mateta næsta sumar - Mainoo efstur á óskalista Napoli - Ungur Þjóðverji á blaði hjá Liverpool og Man Utd
   fim 04. desember 2025 11:40
Elvar Geir Magnússon
Trent meiddist í læri
Mynd: EPA
Trent Alexander-Arnold átti lykilsendingar í fyrstu tveimur mörkum Real Madrid þegar liðið vann 3-0 útisigur gegn Athletic Bilbao í gær.

Trent hefur fengið talsverða gagnrýni fyrir frammistöðuna á sínu fyrsta tímabili í Madríd en hann var að finna sig vel í leiknum í Bilbao. Hans besta frammistaða í Real búningnum.

Hann meiddist hinsvegar í læri í leiknum og þurfti að fara af velli á 53. mínútu. Hann fer í skoðun í dag og þá kemur í ljós hvort meiðslin séu smávægileg eða eitthvað til að hafa áhyggjur af.

Miðjumaðurinn Eduardo Camavinga meiddist líka í leiknum í gær. Á ökkla eftir að hafa orðið fyrir tæklingu.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 15 12 1 2 42 17 +25 37
2 Real Madrid 15 11 3 1 32 13 +19 36
3 Villarreal 14 10 2 2 29 13 +16 32
4 Atletico Madrid 15 9 4 2 28 14 +14 31
5 Betis 14 6 6 2 22 14 +8 24
6 Espanyol 14 7 3 4 18 16 +2 24
7 Getafe 14 6 2 6 13 15 -2 20
8 Athletic 15 6 2 7 14 20 -6 20
9 Vallecano 14 4 5 5 13 15 -2 17
10 Real Sociedad 14 4 4 6 19 21 -2 16
11 Elche 14 3 7 4 15 17 -2 16
12 Celta 14 3 7 4 16 19 -3 16
13 Sevilla 14 5 1 8 19 23 -4 16
14 Alaves 14 4 3 7 12 15 -3 15
15 Valencia 14 3 5 6 13 22 -9 14
16 Mallorca 14 3 4 7 15 22 -7 13
17 Osasuna 14 3 3 8 12 18 -6 12
18 Girona 14 2 6 6 13 26 -13 12
19 Levante 14 2 3 9 16 26 -10 9
20 Oviedo 14 2 3 9 7 22 -15 9
Athugasemdir
banner
banner