Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 05. júní 2021 11:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Undankeppni HM: Neymar skoraði og lagði upp
Mynd: epa
Brasilía og Ekvador áttust við í undankeppni HM, suður ameríkuriðlinum, Brasilía vann með tveimur mörkum gegn engu.

Neymar lagði upp fyrra markið á Richarlison þegar rúmur klukkutími var liðinn af leiknum. Neymar skoraði síðan sjálfur seinna markið úr vítaspyrnu á loka mínútu leiksins en brotið var á Gabriel Jesus leikmanni Man City.

Brasilía er með fullt hús stiga eftir fimm leiki, fjórum stigum á undan Argentínu en Ekvador er í þriðja sæti með 9 stig.

Byrjunarlið Brasilíu: Alisson, Danilo, Marquinhos, Militao, Sandro, Lucas Paqueta, Casemiro, Fred, Richarlison, Neymar, Gabriel Barbosa.
Athugasemdir
banner
banner
banner